no
Книги
Óþekktur

Bárðar saga Snæfellsáss

Bárðar saga Snæfellsáss fjallar um Bárð nokkurn sem var hálfur maður og hálfur risi. Hann flúði land í Noregi og nam land á Snæfellsnesi. Síðar gekk hann svo í jökulinn og gerðist landvættur Snæfellinga.
Sagan gerist á landnámsöld og er rituð í svokölluðum ýkjustíl. Hún segir frá tröllum, skapmiklum konum og hugdjörfum mönnum. Sögusvið bókarinnar er utanvert Snæfellsnes og tröllabyggðir Noregs. Átök kristni og heiðni koma við sögu, þar sem Bárður mætir sjálfum Ólafi Tryggvasyni, Noregskonungi.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
48 печатни страници
Оригинална публикация
2020
Година на публикуване
2020
Издател
Saga Egmont
Вече чели ли сте я? Какво мислите за нея?
👍👎
fb2epub
Плъзнете и пуснете файловете си (не повече от 5 наведнъж)