no
Книги
Óþekktur

Bandamanna saga

Bandamanna saga er eina Íslendingasagan sem öll gerist eftir söguöld eða skömmu eftir 1050. Hún gerist að mestu í Miðfirði í Húnaþingi og svo á alþingi á Þingvöllum. Verkið fjallar um feðgana Ófeig Skíðason og Odd son hans. Sá yngri varð auðugur af verslun og keypti sér jörð á Mel í Miðfirði ásamt því að kaupa sér þar goðorð. Lendir hann svo í hinum ýmsu vandræðum þar sem faðir hans kemur honum til bjargar. Bandamanna saga er sögð á gamansaman hátt en deilir um leið á stétt höfðingja.
Frásögnin er merkileg fyrir þær sakir að hún er varðveitt í bæði Möðruvallabók og Konungsbók. Útgáfurnar tvær eru ekki eins að öllu leyti og er sú sem finnst í Möðruvallabók töluvert lengri en hin, sem dæmi. Skiptar eru skoðanir fræðimanna á því hvor útgáfan hafi komið á undan.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
39 печатни страници
Оригинална публикация
2020
Година на публикуване
2020
Издател
Saga Egmont
Вече чели ли сте я? Какво мислите за нея?
👍👎
fb2epub
Плъзнете и пуснете файловете си (не повече от 5 наведнъж)