is
Абонамент за аудиокниги
H.c. Andersen

Rósarálfurinn

Слушайте в приложението
Í fegurstu rósinni í garðinum býr agnarlítill álfur, svo lítill að ekkert mannlegt auga fær greint hann. Kvöld eitt er hann svo seint á ferð að rósin hans hefur lokað blöðum sínum. Á næturgöltri sínu um garðinn gengur hann fram á elskendur á ástarfundi, og verður í kjölfarið vitni að voðaverki. Knúinn áfram af gæsku og samúð með ástfangna unga fólkinu leggur hann upp með það að markmiði að illvirkinn fái makleg málagjöld.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Þrátt fyrir fagran titil er „Rósarálfurinn" myrk saga um morð og illþýði. Eins og svo oft í sögum Andersens er stillt upp andstæðum manns og náttúru, þar sem hið síðarnefnda er gott og fallegt meðan mannskepnan er óréttlát og grimm. Sagan hverfist um glæpamál, lausn þess og makleg málagjöld, sem minnir um margt á norrænu glæpasöguna sem ómældra vinsælda nýtur á okkar tímum.
0:15:09
Издател
Saga Egmont
Година на публикуване
2020
Вече чели ли сте я? Какво мислите за нея?
👍👎
fb2epub
Плъзнете и пуснете файловете си (не повече от 5 наведнъж)