is
Абонамент за аудиокниги
H.c. Andersen

Jólaævintýri

Слушайте в приложението
Úrval dásamlegra jólaævintýra eftir hinn ástsæla höfund Hans Christian Andersen sem gaman er að njóta á notalegum vetrarkvöldum. Láttu hrífast með inn í töfraveröld eins rómaðasta ævintýraskálds allra tíma. Enn í dag, næstum því tveimur öldum eftir að þau birtust fyrst á prenti, segja hin sígildu ævintýri H.C. Andersen okkur ótal dæmisögur um hið góða og hið illa, um ástina og sorgina, um þrautseigju í erfiðum aðstæðum. Ævintýrin höfða vel til barna, en veita fullorðnum lesendum einnig margt að hugsa um! Rifjaðu upp gömul kynni af uppáhaldsævintýrum bernskuáranna og opnaðu ungum lesendum leið inn í heillandi hugarheim H.C. Andersen – nú, þegar jólin eru alveg að ganga í garð...

nH.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Þar blandar hann saman ævintýraminnum munnmælaheimsins og ljúfsárri sköpun sinni svo úr verður hreinn og tær táknheimur sem hægt er að lesa á ýmsa vegu.nSögur H.C. Andersens hafa verið færðar í ótal listform, svo sem leikrit, ballett og kvikmyndir.
2:16:39
Издател
Saga Egmont
Година на публикуване
2020
Вече чели ли сте я? Какво мислите за нея?
👍👎
fb2epub
Плъзнете и пуснете файловете си (не повече от 5 наведнъж)